Episodes 31
Avg. Duration 40m
Activity Highly Active
Apple Rating 5.0 (2)
Since Oct 2024
Latest Episode May 2026

Publishing Details

Schedule
Monthly
Format
Episodic
Consistency
66%
Hosting
feeds.captivate.fm

About This Podcast

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja: - skilja eigin líðan og samskipti betur - takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð - byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl - sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

Podcasting 2.0 Features

episode medium

Explore Statistics

Recent Episodes

Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum

May 13, 2026 54m

Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum…

Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma

Apr 27, 2026 38m

Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða…

Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað

Mar 24, 2026 44m

Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við…

Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað

Feb 23, 2026 44m

Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og…

Reiði – ógn eða leiðarvísir?

Feb 02, 2026 46m

Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona…

Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa?

Jan 27, 2026 49m

Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið.…

Sjálfstraust

Jan 02, 2026 42m

Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum…

Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna

Dec 05, 2025 40m

Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa…

Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita

Nov 27, 2025 50m

Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við…

Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar

Nov 05, 2025 46m

Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka…

Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi

Oct 24, 2025 44m

Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu…

Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg

Oct 01, 2025 45m

„Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og…

Sálfélagslegt öryggi á vinnustað

Sep 09, 2025 47m

Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur…

Tilfinningagreind

Sep 05, 2025 41m

Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og…

Stöðutékk - á þér...

Jul 27, 2025 39m

Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur…

Sumarfrí sem streituvaldur

Jul 16, 2025 29m

Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur  bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér og…

Að vinna með einhverjum sem þér líkar ekki við.

May 27, 2025 28m

Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann, reynum að skilja og…

Framhjáhald – út frá sjónarhóli þess sem haldið er framhjá

May 19, 2025 44m

Í þessum þætti förum við yfir algenga upplifun og líðan hjá fólki sem haldið er framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.

Samskipti - Mikilvægasta verkfærið á vinnustaðnum

Apr 04, 2025 32m

Í þessum þætti förum við yfir víðan völl þegar kemur að samskiptum á vinnustað, hvaða áhrif ógagnleg samskipti hafa á líðan starfsfólks og hvaða leiðir eru farsælar til þess að efla samskipti á…

Hvar tilheyrir þú og skiptir það máli fyrir heilsuna?

Mar 21, 2025 33m

Í þessum þætti förum við yfir það að tilheyra og hversu djúpstæð þörf það er innra með okkur. Við skoðum hvað gerist ef við upplifum að við tilheyrum ekki  bæði í einkalífi og starfi og svo skoðum…

Frequently Asked Questions

How many episodes does Auðnast have?

Auðnast has published 31 episodes since October 2024, covering topics in Business, Health & Fitness.

Is Auðnast still active?

Auðnast is currently highly active with new episodes monthly. Average episode length is 40m.

Similar Podcasts