Publishing Details
About This Podcast
Explore Statistics
Recent Episodes
#0282 Nýdönsk – Himnasending
Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð,…
#0280 Faith No More – Angel Dust
Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!
#0278 Angine de Poitrine – Vol. II
Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu? Taktu þátt í…
#0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951 - 2026)
Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar…
#0276 Nick Drake – Pink Moon
Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon…
#0275 Killing Joke – Night Time
Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum…
#0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur
Það er hægt að hjakka endalaust í einhverjum plötum, en að þessu sinni ákváðu þáttastjórnendur að rifja upp bestu tónleika sem þeir hafa sótt. Þrír topp-5 listar og ekkert rugl. Gleðilega páska!
#0273 Lenny Kravitz – Mama Said
Lenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á…
#0272 Phil Collins – No Jacket Required
Platan No Jacket Required frá 1985 átti stóran þátt í því að gera Phil Collins að einni allra holdugustu poppskepnu 10. áratugarins. Hún er jafnframt sú besta frá Phil.
#0271 Frímínútur – „Animal“ Andy
Í þættinum um Wham!/George Michael bærðust vangaveltur um það hvort að eina sólóplata hins helmings dúettsins, Andrew Ridgeley (Son of Albert, 1990), væri mögulega það besta sem hafi komið frá Wham!…
#0270 Mastodon – Leviathan
Atlanta-sveitin Mastodon þvertekur fyrir það að vera kölluð þungarokkssveit, en er þrátt fyrir það eftirlæti margra er kenna sig við metalinn. Við förum í saumana á þessu ferlíki í þætti vikunnar.
#0269 Spice Girls – Spice
Trúir því einhver að einungis Bítlarnir skáka Spice Girls hvað ýmsan árangur í vinældalistaklifri varðar? Eftir miðjan tíunda áratuginn kom þessi stúlknasveit inn í poppheima sem stormsveipur og…
#0268 Pet Shop Boys – Behaviour
Rafdúettinn Pet Shop Boys hefur selt meira en 100 milljón plötur á heimsvísu, en þeirra gjöfulasta tímabil var níundi áratugurinn. Þar var hins vegar ekki fyrr en árið 1990 sem þeir sendu frá sér…
#0267 Aerosmith – Toys in the Attic
Aerosmith er ein algerasta rokksveit sem heimurinn hefur séð. Sukkið, melódíurnar, riffin, fötin, frægðarflug, niðurbrot og upprisa, þetta er allt þarna. Doktorinn telur bandið hafa toppað á þriðju…
#0266 Frímínútur – Besta Besta platan II: Hlustendaval
Í beinu framhaldi af síðustu Frímínútum, þá leyfðum við hlustendum að velja bestu plötuna af öllum þeim sem við höfum fjallað um í gegnum tíðina. Í þessum þætti gerum við þetta upp.
#0265 Frímínútur – Besta Besta platan
Frá því að fyrsti þátturinn fór í loftið haustið 2019 hafa um 220 plötur hlotið titilinn „Besta platan“. En hver af þessum plötum er raunverulega best?
#0264 Wham!/George Michael – Faith
George Michael var eitt mesta poppstirni heims, satt og sannað og það með löggildum pappírum. Í þættinum gerum við úttekt á mögnuðum ferli þessa mikla meistara og kippum poppbrjálæðinu Wham! einnig…
#0263 Devo – Oh, No! It's Devo
Artí og ögrandi? Kjánalegt grall? Undur með einn smell? Undir hvaða hatt er best að setja Devo?
#0262 Robbie Williams – I've Been Expecting You
Robbie Williams er vægast sagt skrautlegur náungi. En er eitthvað varið í þessa músík?
#0261 Tool – Ænima
Gáfumannaþungarokk Tool náði hæstu hæðum tiltölulega fljótt eða á annarri plötunni, Ænima (1996). Um það má hins vegar deila og var slíkt gert í tólf tíma þætti, gerðum til að endurspegla lengd laga…
Frequently Asked Questions
Besta platan has published 280 episodes since September 2019, covering topics in Music, Music Commentary.
Besta platan is currently highly active with new episodes weekly. Average episode length is 1h 19m.
Similar Podcasts
Fílalag
Fílalag
371 episodes
Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn
Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson
56 episodes
KISS Army Iceland Podcast
KISS ARMY ICELAND
99 episodes
Fljúgum hærra
Lovísa og Linda
130 episodes
Popparasögur
Vignir Egill Vigfússon
12 episodes
Fljúgum hærra
Lovísa og Linda
127 episodes