Publishing Details
About This Podcast
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, vita sitt hvað um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda og í þessum þáttum tala þeir um bæði þessi efni. Þora meðan aðrir þegja...
Explore Statistics
Recent Episodes
S4E70 Sumarþáttur — Vellíðan er aukaatriði
Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning…
S4E69 69 – Brosnan baular
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum…
S4E68 68 – 18. aldar fuckboi
Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni, og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun,…
S4E67 67 – Byltingin er eilíf
Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst…
S4E66 66 – Geta Þjóðverjar dansað?
Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt…
S4E65 65 – Maðurinn sem æpti bravó!
Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto, sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið…
S4E64 64 – Batman á heima á Selfossi
Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra…
S4E63 63 – Pavarotti rekur tána í
Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto…
S4E62 Páskaþáttur – Guð er með öll spilin á hendi
Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir…
S4E61 61 – Puccini og kynlífsbyssurnar
Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss…
S4E60 60 – Krípí stelpur og kexát
Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum,…
S4E59 59 – Í þessum mjúka þræði ...
Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld…
S4E58 58 – Brúðkaupið!
Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að…
S4E57 57 – Húmor flyst ekki alltaf vel
Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera…
S4E56 Jólaþáttur V: Kjöthleifsát og kynusli
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir…
S4E55 55 – Brothætta konan og eitraða karlmennskan
Gunnlaugur og Ármann ræða Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og í leiðinni óhjákvæmilega 19. aldar rithöfundinn Prosper Mérimée og söngkonuna Mariu Callas. Gunnlaugur segir hræðilegan brandara um…
S4E54 54 – Óhefðbundin fegurð óperusöngvara
Gunnlaugur og Ármann ræða óperettu sem Ármann hefur raunar séð á sviði, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehar sem var meistari léttleikans og gleðinnar fyrir utan að hefja þrítugu konuna til vegs og…
S4E53 53 – Nazgúlaskrækir brjóstmylkinga
Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan…
S4E52 52 – Leiksoppar og rannsóknaræfingar
Ármann og Gunnlaugur eru ekki sérfróðir um óperur eins og þeir hamra á en hafa báðir horft á Ævintýri Hoffmanns (1881) eftir Frakkann Jacques Offenbach, samtíðarmann Verdi og Wagners. Þar með hafa…
S4E51 51 – Varasamir vasaklútar
Nú fer hlaðvarpið rækilega út fyrir þægindarammann, yfirgefur Íslendingasögur í bili og beinir sjónum að óperum í staðinn. Í fyrsta þætti er rætt um Ótello (1887) eftir græningjann Giuseppe Verdi og…
Frequently Asked Questions
Flimtan og fáryrði has published 71 episodes since June 2020, covering topics in Arts, Books.
Flimtan og fáryrði is currently highly active with new episodes every 2 weeks. Average episode length is 38m.