Publishing Details
About This Podcast
Við ferðumst mikið.
Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn.
En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar.
Við höfum burrito í matinn. Borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt.
Horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn.
Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi.
Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi. Baldur og Haukur skoða allt það sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.
Explore Statistics
Recent Episodes
#4 Ófreskjan og einræðisherrann
Hvað gerir vitfirrtur þjóðarleiðtogi þegar kvikmyndaiðnaðurinn í ríki hans er í niðursveiflu? Jú, hann auðvitað rænir kvikmyndaleikstjóra frá nágrannaríkinu og pínir hann til að leikstýra sjö…
#3 Landsleikur!
Hvernig verða lönd til? Jú, með slembivali á internetinu auðvitað. Heimsborgarar fara í sinn fyrsta „landsleik“ og reyna að fá úr því skorið hvort landið sé betra – Haukstópía eða Baldland. Taktu…
#2 Bobbi í Berlín
Þjóðverjar eru þekktir fyrir vandvirkni, verkvit og stundvísi. Einhvern veginn klikkaði þetta samt allt þegar ákveðið var að byggja nýjan flugvöll í Berlín eftir fall múrsins 1989. Baldur leiðir…
#1 Skepnuskapur
Heimurinn er fullur af alls konar framandi furðuskepnum, en við Íslendingar fengum öll lélegu dýrin. Í þessum fyrsta „alvöru“ þætti Heimsborgara ræða þeir Baldur og Haukur um það hvernig fríska mætti…
#0 Velkomin í heiminn
Heimsborgarar! Hvað er nú það? Í þessum fyrsta þætti, sem við flokkum sem þátt númer núll, ætlum við að gera okkar besta til að útskýra það fyrir ykkur. Það er ekkert víst að það takist, en leyfið…
Frequently Asked Questions
Heimsborgarar has published 5 episodes since April 2026, covering topics in Places & Travel, Society & Culture.
Heimsborgarar is currently highly active with new episodes every 2 weeks. Average episode length is 1h 15m.