Publishing Details
Contact & Outreach
About This Podcast
Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar.
Frá því að hann tók við embætti forseta hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið.
Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar.
Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir.
Í þessum þáttum sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Explore Statistics
Recent Episodes
12. Mannætukóngurinn Sam Altman
Á næstu árum er óhjákvæmilegt að einhver muni þróa stórhættulega ofur-gervigreind. Það er spurning upp á líf og dauða hver það er sem muni stjórna þessari tækni. Sam Altman vill að við treystum honum…
11. Gönguskíðagarpurinn Dr. Alex Karp
Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins.Við fjöllum um…
10. Sæðisgjafinn Elon Musk
Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn…
9. Guðfræðingurinn J.D. Vance
Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið…
8. Þeir ætla að lifa að eilífu
Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og…
7. Hannes Hólmsteinn og bandaríska hægrið
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði og hefur sérhæft sig í frjálshyggju. Hann þekkir til í Silicon Valley, hefur hitt Peter Thiel og einnig marga helstu hugsuði…
6. Crypto-keisarinn David Sacks
Á dögunum var David Sacks útnefndur gervigreindar og rafmynta-keisara hvíta hússins, semsagt helsti ráðgjafi Trump í þessum málefnum. Sacks er gamall skólafélagi Peter Thiel og JD Vance hefur sagt…
5. Starfsneminn Marc Andreessen
Í þætti dagsins kynnum við okkur hugmyndir fjárfestisins Marc Andreessen. Marc hefur þangað til nýlega verið yfirlýstur demókrati en nú styður hann Trump. Hann tók þátt í því að hjálpa Trump að velja…
4. Libbar og amerískt lýðræði
Fjórði þátturinn er með óvenjulegu sniði. Við fáum til okkar viðmælendur sem hjálpa okkur að skilja stofnun bandaríska lýðveldisins og frjálslyndisstefnuna, liberalismann, sem Peter Thiel og fleiri…
3. Borgarskipulagsfræðingurinn Balaji Srinivasan
Við fjöllum um útópískar hugmyndir Kísildalsins, meðal annars Netríkið, Network State, sem Balaji Srinivasan hefur talað fyrir. Við ræðum meðal annars GAZA Inc, Prospera og tilraunir Praxis til að…
2. Bloggarinn Curtis Yarvin
Curtis Yarvin er tölvunarfræðingur og bloggari. Hann er líka maður myrku upplýsingarinnar, eða Dark Enlightenment og hann hefur lengi talað fyrir því að Bandaríkin þurfi að taka upp konungsveldi. Við…
1. Frumkvöðullinn Peter Thiel
Við fjöllum við um þýsk-amerísk-nýsjálenska fjárfestinn Peter Thiel, læriföður varaforsetans JD Vance og fyrsta áhrifamanninn úr Silicon Valley sem studdi við Donald Trump.Það efni sem við notuðum…
Frequently Asked Questions
Konungssinnar í Kísildal has published 12 episodes since March 2025.
Konungssinnar í Kísildal is currently highly active with new episodes every 2 weeks. Average episode length is 53m.
Sign up on Grep.FM to access contact details for Konungssinnar í Kísildal, including email and social media links.